Fara í efni
Íslensk ofurhetja fyrir börn

Halló! Ég er Sólon

Komdu með Sóloni í litrík ævintýri full af söng, gleði og lærdómi.

SÓLON AF STAÐ!
Sólon
Einar Björn, Íris Mist og krakkarnir
Sólon Barnaefni

Um okkur

Sólon Barnaefni er lítið fjölskyldufyrirtæki sem við, Einar Björn og Íris Mist, stofnuðum í kjölfar þess að frumburðurinn okkar fæddist.

Sem nýbakaðir foreldrar fundum við fljótt fyrir því að okkur þótti vanta meira af aðgengilegu og vönduðu barnaefni á íslensku. Við ákváðum því að taka af skarið og prófa okkur áfram með að búa til íslenskt barnaefni á YouTube.

Viðtökurnar hafa farið langt fram úr okkar björtustu vonum og við erum ótrúlega þakklát fyrir þann hlýhug og stuðning sem Sólon Barnaefni hefur fengið.

Markmið okkar er einfalt: að skapa skemmtilegt og vandað efni á íslensku sem börn hafa gaman af og foreldrar geta treyst.

  • Söngur og dansLög sem börn syngja með
  • ÆvintýriLeikur og fræðsla í gegnum ævintýraheim Sólons
  • VináttaBína Kanína og fleiri vinir
Spotify
Sönglögin hans Sólons

Syngdu og dansaðu með!

Nammilagið, Danslagið og fleiri - öll lögin eru á Spotify. Smelltu og spilaðu!

Hlusta á Spotify
Hittu vinahópinn

Heimur Sólons

Hittu ofurhetjurnar og vinina sem fylla ævintýrin af gleði, söng og sprelli.

Sólon
Sólon
Ofurhetjan frá sólinni

Sólon elskar að heimsækja jörðina og leika sér, syngja lög og fræða börn. Sólon er líka með ofurkrafta. Með því að segja ofurhetjuorðin þrjú; SÓLON AF STAÐ þá hverfur hann og birtist hvar sem hann vill.

Dimma Dúskur
Dimma Dúskur
Ofurhetjan frá tunglinu

Dimma er mikill prakkari en skemmtilegast af öllu finnst henni að leika við Sólon, vin sinn. Ofurkraftarnir hennar Dimmu er að hún getur látið sig hverfa og birtast þar sem hún vill með því að sveifla skykkjunni sinni.

Bína Kanína
Bína Kanína
Besti vinurinn

Vinkona Sólons sem býr á jörðinni. Þegar Sólon kemur til jarðarinnar heimsækir hann oft Bínu og þau sprella ýmislegt saman.

Lalli Grís
Lalli Grís
Söngsvínið

Lalli Grís býr á jörðinni og er vinur þeirra Sólons og Bínu. Lalli elskar að syngja og þegar Sólon kemur í heimsókn tekur hann upp gítarinn og þau syngja saman.

Bókin

Sólon – Sveitabærinn

Yndisleg saga með flipum um heimsókn Sólons á sveitabæ. Opnaðu flipana og komdu með í ævintýrið!

Kaupa bókina →
Sólon búðin

Bolir, Peysur o.fl.

Bolir, hettupeysur, bakpokar og sundpokar - fáðu Sólon heim úr Vefverslun Símans.

Skoða búðina →

Póstlisti Sólons

Viltu fá frekari upplýsingar um efni frá Sólon? Skráðu þig á póstlistann.